Þú ert hér

Þjónusta

Blóðsykursmælingar

Hækkun blóðsykurs er ekki bundin við aldur og því er ástæða fyrir alla að láta mæla blóðsykurinn reglulega. Ef grunur leikur á að um sykursýki sé að ræða er þannig hægt að grípa strax til aðgerða. Sykur er einn helsti orkugjafi líkamans og blóðsykursmæling gefur til kynna hversu mikill sykur er í blóðinu. Líkaminn notar insúlín til að vinna úr sykrinum og skilar honum til líkamans aftur sem orku. Blóðsykurinn hækkar ýmist vegna þess að brisið framleiðir of lítið insúlín til að vinna úr sykrinum eða vegna þess að líkaminn getur ekki nýtt insúlínið til að vinna úr blóðsykrinum.

Einkenni hækkunar blóðsykurs eru t.d.;

  • þreyta
  • þorsti
  • tíð þvaglát
  • lystarleysi og þyngdartap
  • kláði umhverfis kynfæri
  • aukin hætta á sýkingum í húð, munni eða leggöngum

Eftirtalin apótek Lyfja & heilsu mæla blóðsykur:

Pantaðu tíma í mælingu við tökum vel á móti þér.



Apótekin okkar


Breyta letri

Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is