Þú ert hér

Þjónusta

Blóðþrýstingsmælingar

Allir sem komnir eru á miðjan aldur ættu að láta mæla blóðþrýstinginn reglulega. Þannig er hægt að bregðast við og koma í veg fyrir ýmsa sjúkdóma. Blóðþrýstingurinn getur gefið mikilvægar vísbendingar um heilsufar. Hann er breytilegur og hækkar eðlilega við áreynslu og álag, bæði andlegt og líkamlegt.  Sé hann hinsvegar óeðlilega hár er hætta á háþrýstingi. Mikilvægt er að greina og meðhöndla háþrýsting um leið og einkenna verður vart því hann getur leitt til heilablæðinga, hjartabilunar, nýrnabilunar, augnskemmda og æðakölkunar.

Háan blóðþrýsting má t.d. lækka  með:

  • heilbrigðari lífstíl
  • breyttu mataræði
  • aukinni hreyfingu
  • meiri slökun

Öll apótek Lyfja & heilsu bjóða uppá blóðþrýstingsmælingar gegn vægu gjaldi.
Komdu í mælingu. Við tökum vel á móti þér.


Apótekin okkar


Breyta letri

Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is