Þú ert hér

Þjónusta

Lyfin heim

Skipholtsapótek hefur opnað póstverslun sem mun þjónusta viðskiptavini Lyfja og heilsu. Póstverslunin er opin virka daga frá kl. 9 - 17. Sími póstverslunarinnar 512 4080 og tölvupóstur lyfinheim@lyfinheim.is


Gagnlegar upplýsingar um póstsendingu lyfja:

Til þess að fá lyfseðilsskyld lyf afgreidd í póstverslun verður póstversluninni að berast frumrit lyfseðla. Þetta getur verið venjubundinn lyfseðill sendur í pósti eða rafrænn lyfseðill frá lækni. 

Áður en lyf eru afgreidd í póstversluninni þurfa viðskiptavinir að hafa samband með tölvupósti eða síma og kanna hvort lyfseðill hafi borist. Eftir að lyfseðill hefur borist ásamt því að óskað hafi verið eftir því að fá seðlana afgreidda í póstverslun er hægt að afgreiða þá út til viðskiptavina.

Lyfin þarf að senda í ábyrgðarpósti og má einungis afhenda þeim sem þau eru stíluð á. Kostnaðurinn við póstsendinguna ásamt umbúðagjaldi greiðist af viðtakanda.

Ekki má póstsenda eftirritunarskyld lyf sem eru þau lyf sem geta haft í för með sér sérstaka hættu á misnotkun. Einnig munu lyf sem þarf að geyma í kæli ekki verða póstsend.


Apótekin okkar


Breyta letri

Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is