Hefur þú ákveðið að hætta að reykja? Stuðningur og ráðgjöf geta gert gæfumuninn í baráttunni við tóbakið. Mikilvægt er að vera vel undirbúin og setja sér markmið. Apótek Lyfja & heilsu bjóða uppá aðstoð við að hætta að reykja, bókaðu tíma í næsta apóteki Lyfja & heilsu, við munum taka vel á móti þér.
Allir geta hætt að reykja Aldrei er of seint að hefja reykbindindi. Við það verður húðin frískari og andardrátturinn léttari. Ef reykingum er hætt fyrir 35 ára aldur geta lungun hreinsað sig að verulegu leyti og tíu árum eftir að reykingum er hætt eru líkurnar á að fá lungnakvef og blóðtappa ekki meiri en hjá þeim, sem aldrei hafa reykt. Samfara reykbindindi er mjög gott að stunda líkamsrækt og breyta um lífstíl. Gott er að forðast þær athafnir sem minna mann á reykingarnar. Þegar maður hættir að reykja hægir á brennslu líkamans. Því er mikilvægt að huga að mataræði, borða grænmeti og ávexti í stað súkkulaðirúsína. Þegar reykingum er hætt er mikilvægt að huga að andlega, líkamlega og félagslega þættinum. Margir upplifa söknuð þegar hætt er reykingum. Allir geta hætt að reykja en það er erfitt. Nikótínið er mjög ávanabindandi álíka vanabindandi og kókaín og heróín. Mikilvægt er að vera ákveðin í því að vilja hætta reykingum áður en hafist er handa.