Þú ert hér

Um okkur

06.01.2010

Viltu hætta að reykja?

Krabbameinsfélag Reykjavíkur hefur um árabil haldið námskeið fyrir einstaklinga eða hópa sem vilja hætta að reykja. Næsta námskeið hefst mánudaginn 18. janúar 2010. Þátttakendur hittast sex sinnum á fimm vikna tímabili, að námskeiði loknu er þátttakendum fylgt eftir. Á námskeiðinu fá þátttakendur fræðslu og ráðgjöf til að hætta að reykja ásamt stuðning til að takast á við reyklausa framtíð. Leiðbeinandi er Ingibjörg K. Stefánsdóttir, hjúkrunarfræðingur. Námskeiðið kostar 13.600 kr. (sem jafngildir því að reykja pakka á dag í 16 daga, þegar pakkinn kostar 850 kr). Öryrkjar, eldri borgarar, atvinnulausir og hjón fá 10% afslátt. Hægt er að skrá sig á reykleysi@krabb.is eða í síma 540 1900.

Nánari upplýsingar á heimasíðu Krabbameinsfélags Reykjavíkur.

Fagleg hjálp bætir árangur.

Apótekin okkar


Breyta letri

Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is