Fyrir jólin stóðu Lyf & heilsa, Apótekarinn og Skipholtsapótek fyrir söfnun til styrktar Fjölskylduhjálp Íslands. Söfnunin fór fram undir yfirskriftinni „Hundrað krónur til hjálpar“ þar sem hundrað krónur af hverri seldri vöru frá Gamla apótekinu runnu óskiptar til Fjölskylduhjálparinnar. Árangur söfnunarinnar var einstakur en alls söfnuðust 745.300 krónur sem þegar hafa verið afhentar Fjölskylduhjálp Íslands.
Vörurnar frá Gamla apótekinu hafa notið vaxandi vinsælda og í fyrra jókst sala þeirra til muna. Vörurnar eru íslenskar, án viðbættra litar- og ilmefna, byggja á gömlum uppskriftum sem hafa verið þróaðar í samstarfi við lækna og lyfjafræðinga. Undir merki Gamla apóteksins eru þrjár vörulínur: Andlitið, Barnið og Húðvörur. Öll fjölskyldan getur notað vörurnar og þær henta vel þeim sem vilja vandaðar húðvörur.