Þú ert hér

Um okkur

29.12.2008

Jólagjöf til Fjölskylduhjálparinnar

Starfsfólk Lyfja og heilsu tóku sig saman og ákváðu að þiggja ekki jólagjafir frá fyrirtækinu þetta árið. Þess í stað ákvað fólkið að gefa andvirði jólagjafa til þeirra sem þyrftu á aðstoð að halda þessi jólin.

Fyrir valinu varð Fjölskylduhjálp Íslands og er andvirðið kr. 1.500.000.

Samkvæmt Ásgerði formanni Fjölskylduhjálparinnar kemur þetta fé sér mjög vel og á besta tíma þar sem erfitt var orðið að sinna neyðarhjálp núna fyrir jólin vegna skorts á fjármagni.

Á myndinni má sjá Guðna B. Guðnason forstjóra Lyfja og heilsu ásamt Hákoni Steinssyni, formanni starfsmannafélags Lyfja og heilsu afhenda gjöfina til Ásgerðar og stelpnanna sem stjórna Fjölskylduhjálpinni.








Apótekin okkar


Breyta letri

Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is