Hoppa yfir valmynd
Snyrtivörur

Augnkrem og augnserum

ESTÉE LAUDER Ultra Lift Reg Youth Eye Creme 15ml

Hvað er þetta: Silkimjúkt augnkrem sem lyftir og stinnir. Auðgað með maríuvendi frá Himalaya-fjöllunum og öflugri tækni sem styrkir augnsvæðið og hægir á öldrunarmerkjum.

46.998 kr.

Vöruupplýsingar

Leyndarmálið á bak við eilífa fegurð. Sjáðu hvernig húðin kringum augun byrjar að ljóma með þessu mjúka, frískandi augnkremi. Með háþróaðri Ultimate Lift-tækni og öflugri, endurbyggjandi meðferð fyrir og viðkvæm svæði kringum augun. Húðin fær verulega lyftingu og verður stinnari viðkomu – og fær kraft sem um munar til að vinna gegn sýnilegum öldrunarmerkjum. Dregur úr sýnileika svitahola. Lýsir dökka bauga.

SANNREYND VIRKNI • Eftir viku: Minni þroti kringum augun. • Eftir fjórar vikur: Viðkvæma húðin næst augunum verður stinnari viðkomu. Dökkir baugar og línur undir augunum hverfa.

Æskubjört útgeislun augnanna er endurheimt.

ENSÍAN FRÁ HIMALAJA: Blómin ensían hefur einstaka eiginleika sem gera því kleift að dafna í harðbýlu og köldu umhverfi Himalaja-fjallanna.

Blómið hefur sérstaka endurbyggjandi eiginleika og getur vaxið í næringarsnauðum jarðvegi í mjög mikilli hæð, útsett fyrir skaðlega UV-geisla og frosthörkur. Þegar stilkur blómsins verður dökkrauður er hægt að tína það. Það er gert með handafli. Með því að nota afar sérhæfðar vinnsluaðferðir er hægt að einangra kjarna blómsins og nýta orku þess í Re-Nutriv. Þannig fáum við magnaðan, kraftmikinn og endurbyggjandi kjarna sem vekur til lífsins náttúrulegar viðbragðsleiðir húðarinnar. Húðin endurheimtir unglegan ljóma sinn og getur betur varist öldrunarmerkjum til lengri tíma.

Re-Nutriv. Fylltu lífið af einstakri fegurð.

Notkun

Notaðu kvölds og morgna.