Barnavörur
Snuð og fylgihlutir
Difrax Natural Snuð 12+ Mánaða Night
Snuð fyrir krílin frá sirka 12 mánaða aldri. Snuðið lýsir í myrkri.
1.898 kr.
Vöruupplýsingar
· Snuð fyrir krílin frá sirka 12 mánaða aldri.
· Snuðin sem mæta sogþörf barnanna og líkir túttan eftir lagi geirvörtunnar.
· Túttan er sporöskjulaga og kúpt og gerir því barninu kleift að snúa snuðinu í munninum.
· Þar sem skjöldur snuðanna er fiðrildalagaður, falla þau vel að andliti barnsins og það loftar vel um vitin.
· Götin á skildinum veita umfram loftflæði og kemur þannig í veg fyrir ertingu í húðinni.
· Stærðin og lagið á snuðunum, stór skjöldur og hálffyllt túttan er sérstaklega hannað með það í huga að þau henti börnum frá 12 mánaða aldri.
· Túttan er örllitið stífari heldur en túttan á 6+ snuðunum, en er mýkri heldur en túttan á 18+ snuðunum. Þessir eiginleikar aðlagar barnið á náttúrulegan hátt við að minnka sogþörfina og fyrstu skrefin í átt að sleppa snuðinu.
· Hnappur og hringur snuðsins draga í sig ljós og lýsa í myrkri.
· Snuðin veita barninu öryggi, huggun og slökun.
· Ráðlagt er að snuðum sé skipt út á 6 vikna fresti. Einnig er mikilvægt að framkvæma daglega athugun á snuði, toga þéttingsfast í túttuna sjálfa og ganga úr skugga um að snuðið sé heilt og óskemmt.
· Fari barn að bíta í snuðin þá er ráðlagt að bjóða því nagstykki eða tanntökuhringi í staðinn.
· Difrax vörurnar eru þróaðar í samvinnu við læknateymi sem m.a. samanstendur af barnalæknum, talmeinatæknum, tannlæknum, mjólkursérfræðingum og næringarráðgjöfum.
· Allar Difrax vörurnar eru BPA fríar.
Notkun
12+ months
Innihaldslýsing
BPA free