
Vöruupplýsingar
Ef þú elskar hárið á þér þegar þú ert nýkomin úr sjónum og það hefur þornað í sólinni þá er sjávarsaltspreyið einmitt fyrir þig! Þetta einstaka mótunarsprey gefur þér villta, úfna áferð sem þú getur annars eingöngu fengið eftir að hafa synt í sjónum. Spreyið hentar einnig vel þegar þú þarft meiri áferð í hárið til þess að móta og halda greiðslu í því. Inniheldur blöndu af 26 steinefnum úr Dauðahafs salti, sem gerir það að verkum að hárið á þér verður áfram mjúkt viðkomu en með meiri fyllingu og lagskiptingu. Sólblóma kjarni gefur að auki hárinu raka og gljáa.
Notkun
Spreyjaðu um það bil 10 sinnum (aðlagið eftir sídd) yfir handklæðaþurrt hár og blástu það EÐA láttu þorna náttúrulega til þess að ná fram þinni innri strandargyðju.
Innihaldslýsing
Aqua (Water), Maris Sal (Sea Salt), PEG-40 Hydrogenated Castor Oil, Polysorbate 20, Magnesium Sulfate, Phenoxyethanol, VP/VA Copolymer, Polyimide-1, Parfum (Fragrance), Imidazolidinyl Urea, Sodium Chloride, Butylene Glycol, Hexyl Cinnamal, Helianthus Annuus (Sunflower) Seed Extract, Tetrasodium EDTA, Butylphenyl Methylpropional, Linalool, Benzyl Benzoate, Limonene, Coumarin, Sodium Hydroxide