Hoppa yfir valmynd
Hjúkrunarvörur

Háls, nef og eyru

Nozoil Original 10ml

Nozoil® Original nefúði fyrirbyggir og meðhöndlar óþægindi í nefi, svo sem: ertingu, kláða, þurra slímhúð, stíflað nef og óþægindi vegna sára, sprungna og blóðnasir

2.898 kr.

Vöruupplýsingar

Nozoil er einstök sænsk vara sem er unnin úr 100 prósent náttúrulegri hreinni sesamolíu. Olían gefur raka, smyr og mýkir þurra og erta slímhúð í nefinu. Að auki myndar olían filmu sem verndar gegn kvefveirum og ofnæmisvökum.

Sesamolía er jurtaolía sem inniheldur mikið af E-vítamíni. E-vítamín er andoxunarefni sem verndar frumuveggi gegn skemmdum af völdum sindurefna, svo sem ósoni og köfnunarefnisdíoxíði, sem eru gjarnan til staðar í þurru og menguðu lofti. Nozoil inniheldur engin rotvarnarefni og skemmir ekki bifhárin í nefinu. Nozoil inniheldur engin prótein sem gætu valdið ofnæmi. Flaskan er sérhönnuð þannig að hún kemst langt inn í nösina og getur úðinn því virkað, eins og segir, þar sem mest er þörf á.

Nozoil® Original nefúði fyrirbyggir og meðhöndlar óþægindi í nefi, svo sem: ertingu, kláða, þurra slímhúð, stíflað nef og óþægindi vegna sára, sprungna og blóðnasir Nozoil inniheldur sesamolíu sem verkar með fyrirbyggjandi hætti og verndar gegn ertingu í nefi, þurrk í nefslímhúð og kláða, ásamt því verndar Nozoil gegn framandi ögnum til dæmis eins og kvefveirum og ofnæmisvökum. Virkni Nozoil á slímhúð nefsins er sönnuð með fjölmörgum rannsóknum. Olían smyr þurra og erta nefslímhúð sem bætir virkni bifhára og gerir þeim kleift að fjarlægja á áhrifaríkari hátt agnir eins og veirur og ofnæmisvaka. Ásamt því myndar olían þunna hlífðarfilmu yfir slímhúð nefsins

Notkun

Úðið 1-3 sinnum í hvora nös, þrisvar sinnum á dag.

Fyrir börn og fullorðna.

Innihaldslýsing

Sesamolía