Hoppa yfir valmynd
Hreinlætisvörur

Kvenvörur

ELLEN Hreinsifroða Með Mjólkursýrugerlum 150ml

® Ellen hreinsifroðan með góðgerlanæringu er mild og hentar fyrir viðkvæma húð á kynfærasvæði kvenna, kemur í veg fyrir ólykt og stuðlar að eðlilegu pH-gildi.

2.998 kr.

Vöruupplýsingar

• Inniheldur mjólkursýrur • Náttúruleg innihaldsefni • Án parabena • Án ilmefna • Viðheldur jöfnu sýrustigi • Vegan & húðprófað

® Ellen hreinsifroðan með góðgerlanæringu er mild og hentar fyrir viðkvæma húð á kynfærasvæði kvenna, kemur í veg fyrir ólykt og stuðlar að eðlilegu pH-gildi. Hreinsifroðan inniheldur rakagefandi góðgerlanæringu sem hjálpar til við að varðveita náttúrulegt pH gildi á nánu svæði, draga úr ertingu og styrkja verndandi hindrun húðarinnar. Tilvalin sem rakfroða fyrir rakstur á kynfærasvæðinu, froðan er drjúg og auðveld í notkun.

Notkun

Notað í tengslum við sturtu og þrif á ytra nánu svæði. Hægt er að nota hreinsifroðuna á allan líkamann og sem raksápa við rakstur. Forðist að þvo nána svæðið oftar en einu sinni á dag til að draga úr hættunni á að þurrka upp viðkvæma nána svæðið.

Innihaldslýsing

Vatn, kókamidóprópýlbetaín, natríumkókóýlglútamat, kalíumsorbat, natríumlevúlínat, mjólkursýra, glýserín, natríumkapróýl/láróýllaktýlat, tríetýlsítrat, morinda citrifolia callus culture lýsat, sítrónusýra.

Endurvinna svona:

  1. Þegar varan er tóm skaltu losa lokið af flöskunni.
  2. Endurvinna alla hluti sem plast