
Húðvörur
Húðvandamál
Pharmaceris E Barrier Krem For Face And Body 75ml
Emotopic Lipid 3 in 1 vinnur á þurrki og exemi; barnaexemi, snertiofnæmi og psoriasis. Fyrir líkamann, 3 í einu; djúpnærandi áburður, baðolía og hreinsir. Fer fljótt og vel inn í húðina. Sefar kláða og stuðlar að heilbrigðri húð. 18% lipids, 32% emolients. Frá fæðingu og upp úr. Án ilmefna.
2.398 kr.
Vöruupplýsingar
E - Emolient er dregið úr latínu og þýðir að mýkja. Emotopic línan er fyrir þurra og mjög þurra húð. Hana má nota frá fæðingu en hún er einnig ætluð fullorðnum. Öll fjölskyldan getur notað þessar vörur. Þær styrkja ysta lag húðarinnar og veita henni alla þá næringu og raka sem hún þarfnast. Þurr húð flagnar oft og á henni myndast þurrkublettir. Þessi lína er hönnuð til þess að mýkja og sefa húðina og draga úr einkennum barnaexems (e. atopic dermatitis) og fyrirbyggja útbrot. Hún sefar og róar þurra húð þannig að hún verður mjúk og teygjanleg á ný.
Notkun
Sem baðolía fyrir nýbura, ungbörn, börn og fullorðna. Leysið 1-2 matskeiðar af vörunni í glasi af volgu vatni. Blandið saman til að fá kremlausn. Kælið og bætið í bað. Ekki þarf önnur hreinsiefni. Eftir bað, þurrkaðu húðina varlega með handklæði. Sýnið varkárni þar sem það getur verið hált vegna olíunnar.Til hreinsunar fyrir líkama ungabarna frá 6 mánaða aldri, barna og fullorðinna.Berðu lítið magn á blauta húð og dreifðu jafnt. Skolið með vatni og þurrkið af með handklæði án þess að nudda. Í snertingu við vatn breytist formúlan í milda hreinsandi lausn, sem freyðir ekki. Það þarf ekki að nota önnur hreinsiefni. Kremáburður fyrir ungbörn frá 6 mánaða aldri, börn og fullorðna. Berið á hreina og þurra húð líkamans. Notið einu sinni til tvisvar á dag.