
Húðvörur
Farðar
Pharmaceris F Protective Corrective Fluid 02 30ml
Fyrir allar húðgerðir einnig þá sem hafa mjög viðkvæma húð. Hentar þeim vel sem eru viðkvæmir fyrir umhverfisþáttum og fá ofnæmi. Verndar vel eftir aðgerðir á húð eins og laser eða sýrumeðferðir. Mælt er með þessum farða fyrir þá sem fá litabreytingar í húð (eins og eftir notkun ákveðinna lyfja, sýkinga í húð eða meðgöngu) einnig fyrir þá sem hafa vitiligo
4.398 kr.
Vöruupplýsingar
Þessi farði veitir hæstu mögulega vörn gegn sólargeislum. Hann hylur mislit í húð og kemur í veg fyrir myndun brúnna bletta. Einstök litarefnin hylja fullkomlega allar misfellur og farðinn helst vel á. Farðinn gefur eðlilega og heilbrigða áferð. Í farðanum er dýrmætt innihaldsefni, Leukine BarrierTM sem sefar og losar húðina við ertingu. Sefandi linseed þykkni stuðlar að rakajafnvægi í húðinni og styrkir ysta lag hennar ásamt því að örva nýmyndunarferli húðarinnar. Fyrir allar húðgerðir einnig þá sem hafa mjög viðkvæma húð. Hentar þeim vel sem eru viðkvæmir fyrir umhverfisþáttum og fá ofnæmi. Verndar vel eftir aðgerðir á húð eins og laser eða sýrumeðferðir. Mælt er með þessum farða fyrir þá sem fá litabreytingar í húð (eins og eftir notkun ákveðinna lyfja, sýkinga í húð eða meðgöngu) einnig fyrir þá sem hafa vitiligo
Notkun
Berið farðann á húðina og dreifið jafnt yfir allt andlitið
Innihaldslýsing
Micronized pigments – Hylur misfellur og gerir það að verkum að farðinn helst lengi á. UV filters – Veita hæstu mögulegu vörn gegn UV geislum og hjálpar til við að koma í veg fyrir litabreytingar í húð. Leukine-BarrierTM – Styrkir ónæmiskerfi húðarinnar og sefar ertingu. Sensiline® – Linseed þykkni stuðlar að rakajafnvægi og styrkir ysta lag húðarinnar um leið og það örvar endurnýjunarferli húðarinnar. Beeswax – Veitir farðanum undurmjúka áferð. Mattifying micro-sponges – Draga í burt umfram húðfitu og gera farðann púðurkennndan.