
Húðvörur
Serum, olíur og ávaxtasýrur
Pharmaceris N Capillaries Caplix Serum VitC 30ml
N Capilix C vítamín serum sem ver húðina gegn sindurefnum. Dregur úr fínum línum og hrukkum og veitir teygjanleika og ljóma. Blæs lífi í dauflega húð.
4.798 kr.
Vöruupplýsingar
N línan hjálpar til við að styrkja háræðanet húðarinnar og vernda hana gegn háræðasliti. Veðurfarið á Íslandi er oft erfitt fyrir húðina. Það getur valdið háræðasliti þegar húðin verður í sífellu fyrir veðrabreytingum. Háræðaslit veldur því að húðin verður rauð og veðurbarin. Þessi húðlína minnkar roða í húðinni og verndar hana gegn áreiti. Varan inniheldur einstök vítamín sem gera húðina bjartari, auka teygjanleika hennar og jafna húðlitinn.
Notkun
Berið á hreina húð að kvöldi bæði andlit, háls og bringu. Nuddið létt og setjið svo krem yfir. Árangur er bestur eftir 4 vikna notkun.
Innihaldslýsing
C vitamin – Styrkir veggi háræðanna, spornar gegn háræðasliti.Canola oil – Inniheldur ríkulegt magn E vítamíns og er sefandi. Dregur úr sýkingum í húðinni og ver húðina gegn þurrki.Carrot oil – Hefur sefandi og róandi eiginleika. Styrkir húðina þannig að hún verður ekki eins viðkvæm.Olive wax – Nærir og veitir raka.Shea butter – Líkir eftir náttúrulegu verndandi fitum húðarinnar. Nærir og sefar. Dregur úr roða og spornar gegn háræðasliti.