
Húðvörur
Húðvandamál
ChitoCare Medical Wound Healing Gel 30ml
ChitoCare® medical Sáragel - Til meðferðar á bráðum og þrálátum sárum ásamt húðvandamálum. Minnkar þrálát sár á árangursríkan hátt. Verndar gegn sýkingum. Græðandi áhrif á bráða- og brunasár. Dregur úr sviða, roða og kláða. Dregur úr blæðingu.Dregur úr örmyndun. Náttúrulega græðandi.
6.098 kr.
Vöruupplýsingar
ChitoCare® medical Wound Healing Gel, lækningatæki í flokki III. ChitoCare® medical inniheldur náttúrulegt kítósan sem er örugg, lífvirk fjölliða, einangruð úr auðlindum sjávar við Íslandsstrendur. Kítósan er undur úr hafinu og samanstendur af amínósykrum sem finnast náttúrulega í líkamanum og hefur þannig góðan lífsamrýmanleika. Kítósan myndar filmu, binst húðinni sem þarfnast verndar. Ekki þarf að fjarlægja filmuna þar sem hún brotnar niður á náttúrulegan hátt við endurnýjun húðarinnar.
Sáragel er auðvelt í notkun og getur aðlagast að húð og sár af öllum stærðum. Filman sem myndast verður glær og örþunn, verndar húð og sár gegn sýkingum, dregur úr blæðingu, örmyndun og sviða með kælandi áhrifum. Það sefar einkenni svo sem kláða og roða, og stuðlar að náttúrulegu viðgerðarferli húðarinnar. Áhrifaríkt á sólbruna, ör, bólur (unglingabólur), frunsur, blöðrur, húðútbrot, exem, þurra og sprungna húð, flugnabit og húðbólgur. Sáragel getur einnig minnkað þrálát sár á árangursríkan hátt. Virkar vel á áverkasár, eins og skurði, núningsáverka, brunasár, þrýstingssár og önnur þrálát sár eins og sykursýkissár. Áhrifarík skyndihjálp. Má einnig nota á húð til styrkingar og verndar í forvarnarskyni. Hentar fyrir alla aldurshópa, einnig eldra fólk og börn. ChitoCare® medical Sáragel (REF 84300) er CE merkt lækningatæki í samræmi við tilskipun ESB 93/42/EEC og reglugerð 934/2010 um lækningatæki.
Notkun
Berið þunnt lag á sár eða viðkvæm húðsvæði og látið þorna í 2 mín. Gegnsæ og teygjanleg filma myndast og verndar húðina. Notið tvisvar á dag eða eftir þörfum. Má þekja með sáraumbúðum ef þörf krefur. Athugið að ekki þarf að fjarlægja filmuna þar sem hún brotnar niður á náttúrulegan hátt við endurnýjun húðarinnar. Fyrir fyrstu notkun skal pumpa nokkrum sinnum úr glasinu þar til dropi kemur. Glasið er þá tilbúið til notkunar. Þvoið hendur vel áður en gelið er notað. Setjið lokið aftur á eftir notkun til að verja skammtarann.
Innihaldslýsing
Afjósað vatn, ChitoClear Kítósan, mjólkursýram natríum bensóat. Inniheldur Kítósan unnið úr rækjuskel. Ofnæmisrannsóknir sýna engin viðbrögð.