
Lausasölulyf
Munnur
Xerodent+ munnstfl 90 stk 28,6 mg /0,25 mg
Xerodent er notað við kvillum sem stafa af minnkaðri munnvatnsframleiðslu og til að fyrirbyggja tannskemmdir hjá fullorðnum sjúklingum með munnþurrk.
2.455 kr.
Vöruupplýsingar
Xerodent inniheldur eplasýru. Súra bragðið örvar munnvatnsviðbragðið og eykur þannig munnvatnsframleiðsluna. Töflurnar innihalda natríumflúoríð sem styrkir glerunginn gegn tannátu (tannskemmdum). Töflurnar innihalda sætuefnið xylitól, sem einnig verndar tennurnar gegn tannskemmdum.
Notkun
Fylgið alltaf fyrirmælum tannlæknisins/læknisins eða tannfræðingsins eða leiðbeiningunum á merkimiða á lyfjapakkningunni. Venjulegur skammtur fyrir fullorðna: 1 tafla eftir þörfum, venjulega 6 sinnum á dag. Við mikinn munnþurrk má auka skammtinn í 12 munnsogstöflur á dag í takmarkaðan tíma. Látið töfluna bráðna hægt í munni. Dreifa skal skammtinum jafnt yfir daginn. Ef stærri skammtur af Xerodent en mælt er fyrir um er notaður Ef of stór skammtur af lyfinu er tekinn inn, eða ef barn hefur í ógáti tekið lyfið skal alltaf hafa samband við lækni, sjúkrahús eða eitrunarmiðstöð (sími 543 2222) til að láta meta hættuna og fá ráðleggingar.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á sérlyfjaskrá
Innihaldslýsing
Virku innihaldsefnin eru eplasýra 28,6 mg, natríumflúoríð sem samsvarar 0,25 mg af flúor í hverri töflu.
- Önnur innihaldsefni eru xylitól (E 967) 421,5 mg/töflu, tvínatríumfosfattvíhýdrat (E 339), makrógól, natríumsterýlfúmarat, póvídón, appelsínubragðefni, vatnsfrí kísilkvoða (E 551).