
Vöruupplýsingar
Broksil er slímlosandi lyf. Það er notað sem slímleysandi viðbót við meðferð með bakteríulyfjum við öndunarfærasýkingum þegar mikil slímmyndun í lungnaberkjum á sér stað. Leitið til læknis ef sjúkdómseinkenni versna eða lagast ekki innan 7 daga.
Notkun
Notið lyfið alltaf eins og læknirinn eða lyfjafræðingur hefur sagt til um. Ef ekki er ljóst hvernig nota á lyfið skal leita upplýsinga hjá lækninum eða lyfjafræðingi. Meðferð skal ekki vara lengur en 5-7 daga án samráðs við lækni. Ráðlagður skammtur er: 3 Fullorðnir og unglingar eldri en 12 ára: 10 ml 2 sinnum á dag. Þessi skammtastærð er viðeigandi gegn bráðri öndunarfæratruflun og í upphafsmeðferð gegn langvinnum einkennum í allt að 14 daga. Börn á aldrinum 6 til 12 ára: 5 ml 2-3 sinnum á dag. Börn á aldrinum 2-6 ára: 2,5 ml 3 sinnum á dag. Börn á aldrinum 1-2 ára: 2,5 ml 2 sinnum á dag. Þessar skammtastærðir eiga við í upphafsmeðferð, skammtana má minnka um helming að 14 dögum liðnum. Ef þú ert með alvarlega skerta nýrna- eða lifrarstarfsemi skaltu ráðfæra þig við lækninn um viðeigandi skammtastærðir. Broksil skal helst taka inn eftir máltíð. Umbúðirnar innihalda mæliglas með kvarða til að auðvelda rétta skömmtun. Athugið: Gert er ráð fyrir auknu flæði slíms og þess vegna geta bæði hósti og hráki aukist.
Sjá nánari upplýsingar um lyfið á sérlyfjaskrá