
Lausasölulyf
Magalyf
Rabeprazol Krka, sþ-hylki 10 mg 14 stk
Til meðferðar í stuttan tíma við einkennum bakflæðis
1.698 kr.
Vöruupplýsingar
Til meðferðar í stuttan tíma við einkennum bakflæðis (t.d. brjóstsviða og nábít) hjá fullorðnum. Rabeprazol Krka tilheyrir flokki lyfja sem kallast „prótónpumpuhemlar“. Þeir verka með því að draga úr magni magasýru sem framleidd er í maganum.
Notkun
Fullorðnir: Ein tafla á dag. Börn og unglingar: Ekki skal nota Rabeprazol Krka fyrir börn eða unglinga yngri en 18 ára.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á sérlyfjaskrá
Innihaldslýsing
Virkt efni: Rabeprazol.