
Lausasölulyf
Verkjalyf
Diklofenak Apofri, hlaup 11,6 mg/g 100 g
Til meðferðar við einkennum vægs til miðlungi mikils, staðbundins verks í tengslum við meiðsli í vöðva eða lið, t.d. íþróttameiðsli.
2.375 kr.
Vöruupplýsingar
Til meðferðar við einkennum vægs til miðlungi mikils, staðbundins verks í tengslum við meiðsli í vöðva eða lið, t.d. íþróttameiðsli. Diclofenac er bólgueyðandi gigtarlyf sem ekki er steri, með verkjastillandi, bólgueyðandi og hitalækkandi eiginleika. Hömlun á nýmyndun prostaglandína er aðal verkunarháttur diclofenacs. Diklofenak Apofri er aðeins ráðlagt til notkunar á húð.
Notkun
Fullorðnir og börn, 14 ára og eldri: Diklofenak Apofri hlaup er borið á sárt og bólgið svæði 3 til 4 sinnum á dag og er nuddað varlega inn í húðina. Magn hlaupsins fer eftir stærð viðkomandi svæðis. 2 til 4 g af Diklofenak Apofri (sem samsvarar 6-12 cm af hlaupi) nægja til að meðhöndla svæði sem er 400-800 cm2 . Hámarks dagskammtur er 16 g af hlaupi. Börn og unglingar: Ekki skal nota Diklofenak Apofri fyrir börn og unglinga yngri en 14 ára.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á sérlyfjaskrá
Innihaldslýsing
Virkt efni: Diclofenac tvíetýlamíni. Hjálparefni með þekkta verkun: Própýlenglýkól.