
Vöruupplýsingar
Emla lyfjaplástur er ætlaður til notkunar sem: Staðdeyfing á óskadddaða húð fyrir: -ástungur, t.d. uppsetningu æðaleggs eða blóðsýnatöku; -skurðaðgerðir á líkamsyfirborði; hjá fullorðnum og börnum
Notkun
Til notkunar á húð. Minniháttar aðgerðir, t.d þegar sett er upp nál og skurðaðgerðir á staðbundnum vefjaskemmdum: Fulllorðnir og unglingar 12 ára og eldri: 1 eða fleiri lyfjaplástrar settir á húð í 1-5 klst. Nýburar og ungabörn: Ekki fleiri en 1 lyfjaplástur í eina klukkustund. Ungabörn 3-11 mánaða: Allt að 2 lyfjaplástrar í eina klukkustund. Börn 1-5 ára: Allt að 10 lyfjaplástrar í 1-5 klukkustund. Börn 6-11 ára: Allt að 20 lyfjaplástrar í 1-5 klukkustund. Börn með ofnæmishúðbólgu (atopic dermatitis): áður en frauðvörtur eru skafnar af - notkunartími: 30 mínútur.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á sérlyfjaskrá
Innihaldslýsing
Virku innihaldsefnin eru lidocain og prilocain. Einn plástur inniheldur 25 mg af lidocaini og 25 mg af prilocaini. Önnur innihaldsefni eru carboxypolymetylen, hert fjöloxýl laxerolía, natríumhýdroxíð og hreinsað vatn. Límefni: Acrylat