
Lausasölulyf
Hormónalyf
Ovestin+ sk-krem 1 mg/g 15 g +stjaka
Hormónauppbótarmeðferð við einkennum frá slímhúð þvag- og kynfæra sem tengjast estrógenskorti við eða eftir tíðahvörf.
2.748 kr.
Vöruupplýsingar
Hormónauppbótarmeðferð við einkennum frá slímhúð þvag- og kynfæra sem tengjast estrógenskorti við eða eftir tíðahvörf.
Notkun
Ovestin er lyf sem inniheldur eingöngu estrógen sem gefa má konum hvort sem þær eru með leg eða ekki. Skammtar: 1 skammtur (0,5 mg estríól) einu sinni á dag í 2-3 vikur. Viðhaldsskammtur: 1 skammtur (0,5 mg estríól) tvisvar sinnum í viku. Ovestin skeiðarkrem á að setja í leggöng með stjöku, rétt fyrir svefn á kvöldin.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á sérlyfjaskrá
Innihaldslýsing
Virka innihaldsefnið: Estríól 1 mg/g (0,1%).Önnur innihaldsefni: Eutanól G, cetýlpalmítat, glýseról, cetýlalkóhól, sterýlalkóhól, polýsorbat 60, sorbitaneinsterat, mjólkursýra, klórhexidínhýdróklóríð, natríumhýdroxíð og hreinsað vatn.