Hoppa yfir valmynd
Lausasölulyf

Nefúðar

Otrivin Junior ukonserveret nefúði 0,50 mg/ml 10 m

1.015 kr.

Vöruupplýsingar

Otrivin Junior er ætlað börnum á aldrinum 2-11 ára.Otrivin Junior er notað við nefstíflu vegna kvefs og bólgu í ennis- og kinnholum. Otrivin Junior verkar þannig að það dregur saman háræðarnar í bólginni slímhúð nefsins. Við það minnkar stíflan í nefinu og loftstreymið um nefið batnar. Verkun hefst eftir fáeinar mínútur og varir í allt að 12 klukkustundir.

Notkun

Börn á aldrinum 2-5 ára: 1 úði í hvora nös 1 til 2 sinnum á sólarhring (á 8-10 tíma fresti) er venjulega nægilegt. Hámarksmeðferðartími er 10 sólarhringar. Ekki úða oftar en að hámarki 3 úða í hvora nös á sólarhring. Börn á aldrinum 6-11 ára: 1-2 úðar í hvora nös, 2 til 3 sinnum á sólarhring að hámarki í 10 sólarhringa. Ekki úða oftar en að hámarki 3 úða í hvora nös á sólarhring. Notkunarleiðbeiningar: Snýttu þér ávallt áður en þú notar nefúðann. Fyrir fyrstu notkun þarf að virkja úðadæluna með því að úða 4 sinnum út í loftið. Eftir það er úðadælan jafnan tilbúin til daglegrar notkunar á meðferðartíma. Haltu flöskunni lóðrétt. Hallaðu höfðinu örlítið fram. Haltu fyrir aðra nösina með fingrinum. Settu stútinn á nefúðaflöskunni í hina nösina. Ýttu hratt á úðadæluna um leið og þú andar inn um nefið. Endurtaktu þetta í hina nösina.