
Vöruupplýsingar
Strefen Orange er notað til að draga tímabundið úr einkennum óþæginda í hálsi eins og verk í hálsi, eymslum og bólgu í hálsi og erfiðleikum við að kyngja hjá fullorðnum og börnum eldri en 12 ára. Strefen Orange er sykurlaus með appelsínubragði.
Notkun
Ráðlagður skammtur: Fullorðnir og börn 12 ára og eldri.
- Settu eina munnsogstöflu upp í munninn og sjúgðu hana hægt.
- Ávallt skal velta munnsogstöflunni um í munninum á meðan hún er sogin.
- Munnsogstaflan á að byrja að virka innan 30 mínútna.
- Notaðu síðan eina munnsogstöflu á 3-6 klukkustunda fresti, eftir þörfum.
- Notið ekki fleiri en 5 munnsogstöflur á sólarhring. Ekki skal nota lyfið hjá börnum yngri en 12 ára.