Hoppa yfir valmynd
Lausasölulyf

Verkjalyf

Paratabs filmhtfl 500 mg 20 stk

Paratabs inniheldur parasetamól sem tilheyrir flokki lyfja sem kallast verkjalyf, notað gegn vægum til miðlungi miklum verkjum og til að lækka hita.

455 kr.

Vöruupplýsingar

Paratabs inniheldur parasetamól sem tilheyrir flokki lyfja sem kallast verkjalyf. Paratabs er notað gegn vægum til miðlungi miklum verkjum og til að lækka hita.

Markaðsleyfishafi Actavis Group PTC ehf.

Notkun

Töfluna skal gleypa með glasi af vatni. Ekki taka meira en ráðlagðan skammt. Athugið að hærri skammtar en ráðlagðir eru geta valdið mjög alvarlegum lifrarskemmdum. Skammta hjá börnum og unglingum skal miða við líkamsþyngd og viðeigandi lyfjaform notað. Paratabs 500 mg er ekki ætlað börnum undir 26 kg. Leitið til læknis ef sjúkdómseinkenni versna eða lagast ekki innan 3 daga.
Kynnið ykkur notkunarleiðbeiningar, varnaðarorð og frábendingar áður en lyfið er notað.

Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á sérlyfjaskrá

Innihaldslýsing

Paratabs inniheldur parasetamól