
Lausasölulyf
Ofnæmislyf
Loritin töflur 10 mg 10 stk
Lóritín inniheldur 10 mg af virka efninu lóratadín og er ofnæmislyf.
795 kr.
Vöruupplýsingar
Lóritín inniheldur 10 mg af virka efninu lóratadín sem tilheyrir hópi andhistamín lyfja. Andhistamín dregur úr ofnæmiseinkennum með því að koma í veg fyrir áhrif histamíns sem er framleitt í líkamanum.
Markaðsleyfishafi Actavis Group PTC ehf.
Notkun
Töfluna skal gleypa með glasi af vatni, með eða án máltíðar. Batni einkenni ekki innan 7 daga skal hafa samband við lækni. Sé þörf á að nota Loritín í lengri tíma en 3 mánuði skal hafa samband við lækni til að rannsaka hvort að einkenni séu ekki af völdum ofnæmis. Töflunni má skipta í jafna skammta.
Lóritín er ekki ætlað börnum yngri en 2 ára nema að höfðu samráði við lækni.
Kynnið ykkur notkunarleiðbeiningar, varnaðarorð og frábendingar áður en lyfið er notað.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á sérlyfjaskrá
Innihaldslýsing
Lóritín inniheldur 10 mg af virka efninu lóratadín Hjálparefni: Laktósi, Örkristallaður sellulósi, Maíssterkja, Magnesíumsterat