
Lausasölulyf
Verkjalyf
Pinex mixtúra 24 mg/ml 100 ml
Pinex mixtúra inniheldur parasetamól og er verkjalyf, notað gegn vægum til miðlungi miklum verkjum og til að lækka hita.
895 kr.
Vöruupplýsingar
Pinex mixtúra inniheldur parasetamól sem tilheyrir flokki lyfja sem kallast verkjalyf. Pinex er notað gegn vægum til miðlungi miklum verkjum og til að lækka hita. Með jarðarberjabragði.
Markaðsleyfishafi Actavis Group PTC ehf.
Notkun
Skammturinn fer eftir þyngd barnsins. Ekki taka meira en ráðlagðan skammt. Athugið að hærri skammtar en ráðlagðir eru geta valdið mjög alvarlegum lifrarskemmdum. Leitið til læknis ef sjúkdómseinkenni versna eða lagast ekki eftir 2-3 daga. Kynnið ykkur notkunarleiðbeiningar, varnaðarorð og frábendingar áður en lyfið er notað.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á sérlyfjaskrá
Innihaldslýsing
Pinex mixtúra inniheldur parasetamól.
Hjálparefni: Glýseról, Sorbitól lausn (sem kristallast ekki) (E420), Póvídón K-30, Natríumsítrat, Kalíumsorbat, Sítrónusýra einhýdrat, Natríummetabisúlfít (E223), Natríumsaccharín, Jarðarberjabragð: Náttúruleg bragðefni, Tilbúin bragðefni, Própýlen glýcól, Benzýlalkóhól, Natríumsítrat