Hoppa yfir valmynd
Lausasölulyf

Ofnæmislyf

Cetirizine Alvogen, filmhtfl 10 mg 10 stk

Ofnæmislyf

395 kr.

Vöruupplýsingar

Cetirizin er ætlað fyrir fullorðna og börn 6 ára og eldri: Notað til að draga úr einkennum frá nefi og augum hjá þeim sem hafa árstíðabundið eða stöðugt ofnæmiskvef. Einnig til að draga úr einkennum langvinns ofsakláða af óþekktum orsökum.

Notkun

Fullorðnir og unglingar eldri en 12 ára: Ráðlagður skammtur er 10 mg, ein tafla, á dag. Börn 6 til 12 ára: Ráðlagður skammtur er 5 mg, hálf tafla, tvisvar á dag.

Ef einstaklingur er næmur fyrir slævandi áhrifum er mælt með að taka lyfið að kvöldi til fyrir svefn.

Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á sérlyfjaskrá

Innihaldslýsing

Hver filmuhúðuð tafla inniheldur 10 mg af cetirizintvíhýdróklóríði.

Hjálparefni: Töflukjarni, Laktósa einhýdrat, Örkristallaður sellulósi, Natríum kroskarmellósi, Vatnsfrí kísilkvoða, Magnesíum stearat. Filmuhúð: Títantvíoxíð (E171), Hýprómellósi 5cP (E464), Makrógól 400