Hoppa yfir valmynd
Lausasölulyf

Nikótínlyf

Nicotinell Forðapl 14 mg/24klst 7 stk

Nicotinell forðaplástur tilheyrir flokki lyfja sem eru notuð þegar verið er að venja sig af reykingum.

5.295 kr.

Vöruupplýsingar

Nicotinell forðaplástur tilheyrir flokki lyfja sem eru notuð þegar verið er að venja sig af reykingum. Nicotinell forðaplástur fæst í þremur styrkleikum (7 mg/24 klst., 14 mg/24 klst. og 21 mg/24 klst.). Nicotinell forðaplástur inniheldur nikótín. Þegar þú notar Nicotinell forðaplástur losnar nikótínið smám saman og berst í líkamann í gegnum húðina.

Notkun

Settu plásturinn á hreinan, þurran og helst hárlausan stað á líkamanum, t.d. bakið, bringuna, upphandlegg eða mjöðmina. Þrýstu plástrinum með flötum lófa að húðinni í u.þ.b. 10-20 sek. Plásturinn má ekki losa eða flytja til því þá límist hann síður. Skiptu um plástur einu sinni á sólarhring. Nicotinell á ekki að setja á sama stað tvisvar sinnum í röð. Vika á að líða, áður en plástur er settur aftur á sama stað.

Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á sérlyfjaskrá