Lausasölulyf
Verkjalyf
Parapró, filmhtfl 700 mg 20 stk
Parapró er notað tímabundið við vægum eða meðalmiklum verkjum sem tengjast mígreni, höfuðverk, bakverk, tíðaverk, tannverk, lið- og vöðvaverkjum, vægri liðagigt og kvef- og flensueinkennum, særindum í hálsi og hita.
925 kr.
Vöruupplýsingar
Parapró er notað tímabundið við vægum eða meðalmiklum verkjum sem tengjast mígreni, höfuðverk, bakverk, tíðaverk, tannverk, lið- og vöðvaverkjum, vægri liðagigt og kvef- og flensueinkennum, særindum í hálsi og hita.
Lyfið inniheldur tvö virk innihaldsefni, íbúprófen og parasetamól. Íbúprófen tilheyrir flokki lyfja sem kölluð eru bólgueyðandi gigtarlyf. Þau draga úr verkjum, bólgum og hita. Parasetamól er verkjalyf sem hefur annan verkunarhátt en íbúprófen og er verkjastillandi og hitalækkandi.
Notkun
Parapró er ætlað til notkunar hjá fullorðnum, 18 ára og eldri. 1 tafla allt að þrisvar á dag með vatni. Látið minnst 6 klst. líða á milli skammta.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á sérlyfjaskrá
Innihaldslýsing
Hver tafla inniheldur 200 mg af íbúprófeni og 500 mg af parasetamóli.