Hoppa yfir valmynd
Lausasölulyf

Verkjalyf

Voltaren hlaup 11,60 mg/g 50 g

Voltaren Gel er notað við staðbundnum bólgum.

1.965 kr.

Vöruupplýsingar

Voltaren dregur úr bólgu og er verkjastillandi. Voltaren er notað við verkjum, eymslum og þrota í liðum og vöðvum vegna bólgu.

Notkun

Fullorðnir og börn 14 ára og eldri: 2-4 g af hlaupi (sem jafngildir magni á stærð við kirsuber til valhnetu) er borið á aumt svæði 3-4 sinnum á sólarhring. Mælt er með handþvotti eftir að hlaupið hefur verið borið á, nema verið sé að meðhöndla hendur. Ef meðhöndla á bráð, minniháttar meiðsli í stoðkerfi skal ekki nota Voltaren lengur en 7 daga án samráðs við lækni.

Hafið samband við lækninn ef einkenni eru viðvarandi eða versna eftir meðferð í 7 sólarhringa.

Börn og unglingar 14 ára og yngri: Ekki liggja fyrir nægjanlegar upplýsingar um öryggi og verkun hjá börnum og unglingum 14 ára og yngri

Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á sérlyfjaskrá

Innihaldslýsing

Voltaren 11,6 mg/g hlaup. Inniheldur díklófenaktvíetýlamín.