Hoppa yfir valmynd
Lausasölulyf

Verkjalyf

Sumatriptan Apofri, filmhtfl 50 mg 2 stk

Bráðameðferð við mígreniköstum, með eða án fyrirboðaeinkenna.

2.428 kr.

Vöruupplýsingar

Sumatriptan Apofri tilheyrir flokki lyfja sem kallast triptanlyf og eru notuð við mígrenihöfuðverk. Mígreni getur orsakast af tímabundinni víkkun æða í höfðinu. Lyfið dregur úr víkkun þessara æða. Við það minnkar höfuðverkurinn og dregur úr öðrum einkennum mígrenis eins og ógleði, uppköstum og óþoli fyrir ljósi og hljóði. Sumatriptan Apofri er notað til að meðhöndla mígreniköst, með eða án fyrirboðaeinkenna (sem venjulega samanstanda af sjóntruflunum eins og leiftri, sikk-sakk línum, stjörnum eða bylgjum). Einungis má nota Sumatriptan Apofri þegar þú færð teikn eða einkenni um mígrenikast. Mígrenihöfuðverkur er venjulega miðlungi mikill til mikill verkur, öðru megin í höfðinu (en getur skipt um hlið á milli kasta) og er ásamt æðaslætti. Einkenni eins og ógleði, stundum uppköst, og augljós viðkvæmni fyrir ljósi og hljóði eru algeng þegar um mígreni er að ræða. Sumatriptan Apofri er ekki ætlað til meðferðar við annars konar höfuðverk, t.d. höfuðverk vegna spennu.

Notkun

Fullorðnir: Ein tafla eins fljótt og hægt er eftir að mígrenikast hefst. Þó er verkun þess óháð því á hvaða stigi kastsins það er gefið. Börn: Sumatriptan Apofri er ekki ráðlagt til notkunar hjá börnum.

Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á sérlyfjaskrá

Innihaldslýsing

Virkt efnið er sumatriptan súkkínat. Hjálparefni með þekkta verkun: Laktósa einhýdrat