Hoppa yfir valmynd
Lausasölulyf

Sveppalyf

Amorolfin Alvogen, lakk 5 % 5 ml

Amorolfin Alvogen er notað til meðferðar við sveppasýkingum í nöglum sem áður hafa verið greindar af lækni eða til meðferðar á endurteknum sveppasýkingum.

4.895 kr.

Vöruupplýsingar

Amorolfin Alvogen er notað til meðferðar við sveppasýkingum í nöglum sem áður hafa verið greindar af lækni eða til meðferðar á endurteknum sveppasýkingum. – Amorolfin Alvogen inniheldur virka efnið amorolfin (sem hýdróklóríð), sem tilheyrir flokki lyfja sem kallast sveppalyf. – Það drepur margs konar sveppi sem geta valdið sýkingu í nöglum.

Meðferð skal haldið áfram óslitið þar til nöglin hefur endurnýjað sig og viðkomandi svæði er læknað. Tími og lengd meðferðar ræðst af því hversu svæsin sýkingin er og staðsetningu hennar. Venjuleg meðferðarlengd er sex mánuðir (fingurneglur) og 9-12 mánuðir (táneglur). Endurmeta skal meðferð með reglulegu millibili, á u.þ.b. 3 mánaða fresti.

Notkun

Bera skal lyfjalakkið á sýkta fingur- eða táneglur einu sinni í viku. Í sumum tilfellum getur verið gagnlegt að bera það á tvisvar í viku.

Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á sérlyfjaskrá