Hoppa yfir valmynd
Lausasölulyf

Ofnæmislyf

Cetirizine Alvogen, filmhtfl 10 mg 30 stk

895 kr.

Vöruupplýsingar

Virka efnið í Cetirizine Alvogen er cetirizin tvíhýdróklóríð. Cetirizine Alvogen 10 mg er ofnæmislyf. Cetirizine Alvogen er ætlað fullorðnum og börnum 6 ára og eldri;

  • til að draga úr einkennum í nefi og augum vegna árstíðabundins eða stöðugs ofnæmiskvefs.
  • til að draga úr einkennum ofsakláða.
Notkun

Gleypa þarf töflurnar með glasi af vökva. Töflunni má skipta í jafna skammta. Fullorðnir og unglingar eldri en 12 ára Ráðlagður skammtur er 10 mg, ein tafla, á dag. Fyrir börn getur verið til hentugri kostur en þetta lyf. Leitaðu upplýsinga hjá lækninum eða lyfjafræðingi. Börn 6 til 12 ára Ráðlagður skammtur er 5 mg, hálf tafla, tvisvar á dag. Fyrir börn getur verið til hentugri kostur en þetta lyf. Leitaðu upplýsinga hjá lækninum eða lyfjafræðingi. Sjúklingar með skerta nýrnastarfsemi Mælt er með að sjúklingar með miðlungi mikið skerta nýrnastarfsemi taki 5 mg einu sinni á dag Ef þú ert með alvarlegan nýrnasjúkdóm, vinsamlegast hafðu þá samband við lækninn eða lyfjafræðing sem mun breyta skammtinum í samræmi við það. Ef barnið er með nýrnasjúkdóm, vinsamlega hafðu þá samband við lækninn eða lyfjafræðing sem mun breyta skammtinum í samræmi við þörf barnsins.

Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á sérlyfjaskrá