Hoppa yfir valmynd
Snyrtivörur

Gerviaugnhár

Depend stök augnhár

Fölsk augnhár sem eru stök, tvö saman og þrjú sama. Auðvelt að ná fram náttúrulegri og fallegri útkomu. Létt og þægileg augnhár sem eru auðveld í notkun. Augnháralím án latex fylgir með.

998 kr.

Vöruupplýsingar

Fullkomnaðu förðunina með nokkrum augnhárum frá Depend. Með stökum augnhárum þá er hægt ákvarða staðsetningu á hverju einasta augnhári og hægt að ráða hversu mikla fyllingu þú vilt. Útkoman verður náttúruleg og falleg. Handgerð úr gervi hárum, hárin eru sérstaklega valin til þess að tryggja gæði. Augnhárin eru sveigjanleg og einstaklega létt og meðfærileg sem gerir þau þægileg í notkun. Hægt er að nota augnhárin oftar en einu sinni. Í pakkanum fylgir augnháralím án latex, sem er gott fyrir þá sem eru með viðkvæm augu og með ofnæmi. Ítarlegar notkunarleiðbeiningar eru í pakkanum.

Notkun
  1. Setja skal fölsku augnhárin á, eftir að búið er að farða augun, en áður en maskari er borin á augnhárin.
  2. Fölsku augnhárin eru fjarlægð varlega úr umbúðunum.
  3. Þunn lína af lími er borin á fölsku augnhárin neðst þar sem þau festast við húðina. Bíða skal í 10-15 sekúndur til þess að límið nái að virkjast.
  4. Leggið fölsku augnhárin á húðina eins nálægt hárrótinni af þínum eigin augnhárum
  5. Gott er að ýta niður á augnhárin til þess að þau festist almennilega á húðinni. Gott er að bera smá maskara á til þess að náttúrulegu augnhárin blandist betur við fölsku augnhárin.
Innihaldslýsing

Augnháralím: Acrylates/Ethylhexyl Acrylate Copolymer