Snyrtivörur
Serum, olíur og ávaxtasýrur
BIOEFFECT EGF Serum 30ml
Byltingarkenndir og margverðlaunaðir húðdropar sem innihalda aðeins 7 hrein og áhrifarík innihaldsefni. Lykilinnihaldsefnið, BIOEFFECT EGF (Epidermal Growth Factor), er framleitt með aðferðum plöntu-líftækni í gróðurhúsi á Íslandi. BIOEFFECT EGF er endurnærandi og rakabindandi prótín sem hjálpar til við að örva náttúrulega kollagenframleiðslu og viðhalda sléttri og heilbrigðri ásýnd húðarinnar. EGF Serum er okkar allra vinsælasta vara og sérstaklega þróuð til að vinna á sjáanlegum öldrunarmerkjum á borð við fínar línur og hrukkur, auka þéttleika og veita langvarandi raka. Mildir en áhrifaríkir húðdropar sem henta öllum húðgerðum. Nú í tveimur stærðum, 15 ml. og nýrri 30 ml. stærð.
26.998 kr.
Vöruupplýsingar
Eiginleikar og áhrif Byltingarkenndir EGF húðdropar sem eru þróaðir með aðferðum plöntulíftækni Vísindalega þróað serum sem fyrirbyggir og vinnur á sýnilegum öldrunarmerkjum húðar. Inniheldur okkar einstaka BIOEFFECT EGF – endurnærandi og rakabindandi vaxtarþáttur sem gegnir mikilvægu hlutverki við að efla rakabindingu, auka þéttleika og viðhalda sléttri og heilbrigðri ásýnd húðarinnar. Klínískar innanhússrannsóknir hafa sýnt að EGF Serum eykur raka, dregur úr ásýnd hrukka og fínna lína og þéttir húðina. Upplifðu hámarksárangur með hreinni húðvöru sem inniheldur aðeins 7 náttúrulega virk efni. • Dregur úr ásýnd hrukka og fínna lína • Eykur og viðheldur raka í húðinni • Þéttir og sléttir húðina • Jafnar áferð og húðlit • Hentar öllum húðgerðum • Aðeins 7 innihaldsefni • Aðeins þörf á 2-4 dropum • Án olíu, ilmefna, alkóhóls, parabena og glútens • Án rotvarnarefna • Prófað af húðlæknum
Stærð: 15 ml. og 30 ml.
Passar vel með:
EGF Essence Imprinting Hydrogel Mask Hydrating Cream
Notkun
Berið 2-4 dropa á andlit, háls og bringu. Notið kvölds og morgna, eitt og sér eða með öðrum BIOEFFECT vörum til að hámarka áhrif og virkni.
Innihaldslýsing
GLYCERIN, WATER (AQUA), SODIUM HYALURONATE, TROMETHAMINE, SODIUM CHLORIDE, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1)