Hoppa yfir valmynd
Snyrtivörur

Gjafasett dömuilmir

BIOEFFECT EGF Serum Special Edition

EGF Serum Special Edition inniheldur margverðlaunaða EGF Serum (30 ml) og þrjár lúxusprufur: EGF Eye Serum (3 ml), EGF Essence (15 ml) og Hydrating Cream (7 ml). Saman mynda þessar vörur áhrifaríka fjögurra skrefa húðrútínu sem dregur úr fínum línum og hrukkum, tryggir djúpan og langvarandi raka, þéttir og jafnar yfirborð húðarinnar.

26.998 kr.

Vöruupplýsingar

EGF Serum Special Edition inniheldur: • EGF Serum (30 ml) – Okkar margverðlaunaða serum, þekkt fyrir öfluga virkni gegn öldrun húðar.
• EGF Eye Serum (3 ml) – Sérhönnuð formúla sem nærir, þéttir og sléttir húðina á viðkvæmu augnsvæðinu.
• EGF Essence (15 ml) – Endurnærandi rakavatn sem greiðir fyrir upptöku og virkni EGF og viðheldur heilbrigðri ásýnd húðarinnar.
• Hydrating Cream (7 ml) – Einstaklega létt en nærandi andlitskrem sem tryggir djúpan og langvarandi raka.

• Dregur sýnilega úr fínum línum og hrukkum
• Dregur úr þrota og þreytumerkjum á augnsvæði • Nærandi og eykur rakastig húðarinnar
• Þéttir og sléttir húðina sýnilega
• Eykur ljóma
• Hentar öllum húðgerðum
• Án olíu, ilmefna, alkóhóls og glútens
• Vörurnar eru prófaðar af húðlæknum
• EGF Eye Serum er prófað af augnlæknum

Þessi 15 ára afmælisútgáfa er myndskreytt af íslensku listakonunni Heiðdísi Helgadóttur og skartar mynd af brennisóleyjum sem blómstra um allt land á sumrin.
EGF Serum Special Edition er á sama verði og EGF Serum 30 ml — auk þess fylgja þrjár lúxusprufur.

Notkun

EGF Serum Special Edition inniheldur allt sem til þarf í milda en áhrifaríka húðrútínu.
Skref 1: Berðu EGF Essence á hreina og þurra húð. Helltu nokkrum dropum af rakavatninu í lófann og þrýstu mjúklega inn í húðina á andliti, hálsi og bringu.
Skref 2: Berðu 2-4 dropa af EGF Serum á andlit, háls og bringu með mjúkum hringhreyfingum upp á við.
Skref 3: Berðu EGF Eye Serum á hreina húð umhverfis augun. Nuddaðu mjúklega með fingurgómunum til að tryggja jafna dreifingu.
Skref 4: Berðu að lokum Hydrating Cream á andlit, háls og bringu. Nuddaðu upp á við með mjúkum strokum. Bíddu í 3–5 mínútur til að leyfa húðinni að draga í sig rakann áður en farði eða sólarvörn eru borin á andlitið. Við mælum með þessari húðrútínu bæði kvölds og morgna til að hámarka árangurinn.

Innihaldslýsing

EGF Serum Ingredients: GLYCERIN, WATER (AQUA), SODIUM HYALURONATE, TROMETHAMINE, SODIUM CHLORIDE, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1) EGF Eye Serum Ingredients: WATER (AQUA), GLYCERIN, BUTYLENE GLYCOL, CARBOMER, SODIUM CHLORIDE, PHENOXYETHANOL, SODIUM CITRATE, SODIUM DEHYDROACETATE, SODIUM HYALURONATE, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1) EGF Essence Ingredients: WATER (AQUA), GLYCERIN, ISOPENTYLDIOL, PROPYLENE GLYCOL, SODIUM CITRATE, SORBITOL, PHENOXYETHANOL, SODIUM CHLORIDE, CITRIC ACID, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1) Hydrating Cream Ingredients: WATER (AQUA), CAPRYLIC/CAPRIC TRIGLYCERIDE, BUTYLENE GLYCOL, C12-20 ACID PEG-8 ESTER, CETYL ALCOHOL, TOCOPHEROL, PHENOXYETHANOL, SODIUM HYALURONATE, ETHYLHEXYLGLYCERIN, CARBOMER, SORBITAN OLEATE, POTASSIUM SORBATE, POTASSIUM HYDROXIDE, CITRIC ACID, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1)