Hoppa yfir valmynd
Snyrtivörur

Andlitskrem

LANCÔME Hydra Zen Gel Cream 30ml

Hydra Zen Gel Cream er andlitskrem með léttri geláferð sem veitir húðinni raka í allt að 72 klukkustundir, gelið róar húðina og gefur henni sýnilegan ljóma.

Eftir fyrstu notkun: Húðin verður mýkri, sléttari og meira ljómandi. Varnir húðarinnar styrkjast sem hjálpar til við að varðveita raka.

Dagleg notkun: Húðin verður endurnærð og merki um streitu minnka.

HENTAR ÖLLUM HÚÐGERÐUM, ÞAR Á MEÐAL VIÐKVÆMRI HÚÐ. Formúlan er sérstaklega þróuð fyrir þurra húð, skort á ljóma og ójafna húð.

3.798 kr.

Vöruupplýsingar

Hydra Zen Gel Cream er létt andlitsgelkrem sem fer hratt inn í húðina og veitir henni góðan raka, þannig að hún verður fersk, mjúk og slétt. Með blöndu af glýseríni, bleiku Centifolia-rósablómvatni og squaline hjálpar þetta róandi andlitsgelkrem til við að draga sýnilega úr roða og daufri húð og veitir húðinni geislandi ljóma.

Virkur lífsstíll og ytri áreiti geta aukið þurrk, óþægindi og skort á ljóma. Þetta róandi gelkrem er þróað til að draga úr merkjum streitu og styrkir um leið varnir húðarinnar. Með því að styrkja varnir húðarinnar varðveitist raki betur í húðinni. Létta geláferðin er auðveld í notkun og skilur húðina ekki eftir klístraða né glansandi. Þetta rakagefandi gelkrem er innblásið af róandi upplifun ilmmeðferðar (arómaþerapíu) og hefur notalegan ilm.

Eftir fyrstu notkun: Húðin verður mýkri, sléttari og meira ljómandi. Varnir húðarinnar styrkjast og með því varðveitist raki betur í húðinni.

Dagleg notkun: Húðin lítur endurnærð út og merki um streitu hafa minnkað.

Hentar öllum húðgerðum, þar á meðal viðkvæmri húð. Formúlan er sérstaklega þróuð fyrir húð sem glímir við þurrk, skort á ljóma og ójafna húðáferð.

Notkun

Notkun Skref 1: Berðu Lancôme Hydra Zen Gel Cream varlega á hreina húð. Byrjaðu á enninu, færðu þig að kinnum og síðan að höku með hreyfingum sem fara frá miðju andlitsins og út á við. Nuddaðu kremið mjúklega inn í húðina með léttum hringlaga hreyfingum til að vinna vöruna inn í húðina.

Skref 2: Ljúktu húðrútínunni með því að þrýsta vörunni létt inn í húðina með fingurgómunum. Þessi tækni hjálpar til við að styrkja og þétta húðina. Byrjaðu á enninu og færðu þig niður að kinnum, höku og kjálkalínu. Notaðu léttan þrýsting til að örva blóðrásina og gefa húðinni ferskt og ljómandi yfirbragð.

Innihaldslýsing

AQUA / WATER / EAU • ROSA CENTIFOLIA FLOWER WATER • GLYCERIN • SQUALANE • DICAPRYLYL CARBONATE • AMMONIUM POLYACRYLOYLDIMETHYL TAURATE • CI 14700 / RED 4 • ALCOHOL • TOCOPHEROL • HYDROXYACETOPHENONE • SODIUM HYALURONATE • SODIUM BENZOATE • SODIUM HYDROXIDE • XANTHAN GUM • ALOE BARBADENSIS LEAF JUICE POWDER • CAPRYLYL GLYCOL • BISABOLOL • ROSA CENTIFOLIA FLOWER EXTRACT • OCTYLDODECANOL • POTASSIUM SORBATE • CITRIC ACID • CITRONELLOL • PARFUM / FRAGRANCE (F.I.L. N70036483/1).