Hoppa yfir valmynd
Snyrtivörur

Gjafasett neglur og förðun

LANCÔME Monsieur BIG Mascara Set

Stækkaðu augnsvipinn með Lancôme Monsieur Big Mascara settinu. Big maskarinn veitir allt að 12x meiri fyllingu og þykkir augnhárin með formúlu sem klístrast ekki, molnar ekki og smitast ekki. Drama Liqui-Pencil augnblýanturinn mótar augun á áhrifaríkan hátt og Bi-Facil augnfarðahreinsirinn fjarlægir farða á auðveldan og mildan hátt.

5.498 kr.

Vöruupplýsingar

Lancôme Monsieur Big Mascara settið inniheldur allt sem þú þarft til að skapa djarfa og áhrifamikla augnförðun. Monsieur Big maskarinn í fullri stærð veitir allt að 12x meiri fyllingu og þykkir augnhárin með formúlu sem klístrast ekki og smitast ekki, maskarinn er með bylgjóttum trefjabursta sem hjúpa augnhárin jafnt. Mini Drama Liqui-Pencil augnblýanturinn er nákvæmur og afar litsterkur og skapar kröftuga augnförðun í einni stroku. Bi-Facil augnfarðahreinsirinn fjarlægir allan farða á auðveldan hátt, þar á meðal vatnsheldar formúlur, og skilur augnhárin eftir hrein og fersk. Vörurnar eru í ferðastærð sem gerir settið fullkomið fyrir notkun á ferðinni eða til daglegra nota. Vörurnar eru prófaðar og samþykktar af augnlæknum og eru öruggar fyrir viðkvæm augu. Þetta lúxussett er tilvalið sem gjöf eða einfaldlega til þess að gleðja þig sjálfa/n.

• Þykkir augnhárin allt að 12x betur en aðrir maskarar og er með uppbyggjanlegri formúlu sem klístrast ekki. • Langvarandi áferð: Maskari sem smitast ekki og helst á í allt að 24 klst. • Drama Liqui-Pencil veitir djúpan, afar svartan lit. • Jöfn ásetning: Bylgjóttir trefjaburstar hjúpa augnhárin jafnt fyrir fyllra og náttúrulegt útlit. • Ferðavænt: Mini stærðir fullkomnar til þess að fríska upp á lookið hvar sem er. • Auðveld hreinsun: Bi-Facil hreinsirinn fjarlægir jafnvel vatnsheldan farða áreynslulaust.

Notkun

• Undirbúðu augnhárin með Cils Booster XL augnháraprimernum frá Lancôme. • Haltu Monsieur Big maskaraburstanum láréttum við augnhárin. • Berðu maskarann á með uppávið hreyfingum á efri augnhár og niðurávið hreyfingum á neðri augnhár. • Byggðu upp eftir þörfum til að ná allt að 12x meiri fyllingu og djúpum svörtum lit. • Ráð frá sérfræðingum: Fjarlægðu maskarann auðveldlega með Lancôme Bi-Facil tvívirkum augnfarðahreinsi.

Innihaldslýsing

AQUA / WATER • CYCLOPENTASILOXANE • ISOHEXADECANE • CI 61565 / GREEN 6 • DECYL GLUCOSIDE • SODIUM CHLORIDE • POLYAMINOPROPYL BIGUANIDE • DIPOTASSIUM PHOSPHATE • COPPER SULFATE • GERANIOL • DISODIUM EDTA • POTASSIUM PHOSPHATE • CITRONELLOL • HEXYLENE GLYCOL • PARFUM / FRAGRANCE (F.I.L. B4701/2).