
Snyrtivörur
Ilmir Herra
Burberry Hero Elixir Parfum 60ml
Burberry Hero Elixir de Parfum sameinar mýkt og kraft. Áhrifaríkt samspil tonkabauna, leðurkenndrar vanillu og líflegs þríeykis sedrusviðar fanga tvíhyggju karlmennskunnar. Skörp lögun flöskunnar er abstrakt endurtúlkun á hófi hests, skreytt Equestrian Knight tákninu á tappanum. Kraftmikill og í senn mjúkur. Hugrakkur og næmur. Burberry Hero Elixir de Parfum.
25.999 kr.
Vöruupplýsingar
Burberry Hero Elixir de Parfum er enn ákafari viðbót við Hero línuna og sameinar mýkt og styrk á einstakan hátt. Ilmurinn heiðrar hetjuna innra með manninum og fagnar þeim styrk og seiglu sem sprettur af berskjöldun og næmni. Hann fangar anda manns sem tekur lífinu af dirfsku og mætir áskorunum með hugrekki og ákveðni. Burberry ilmurinn endurspeglar tvíhyggju karlmennskunnar þar sem mjúkir, sætir tónar mæta djúpum og kraftmiklum ilmum. Hann opnast með ríkulegum tonkabaunum, fylgt eftir af hlýrri vanillu sem stendur í mótsögn við sterkt leður. Samhljómurinn fullkomnast með djúpu og líflegu þríeyki sedrusviðar. Sérhönnuð flaska ilmsins fer úr dökkum, djúpum tónum yfir í hlýjan og brúntóna amber lit. Skörp lögunin er abstrakt endurtúlkun á hófi hests, með Equestrian Knight tákninu á tappanum. Samspil mattra og glansandi áferða á ytri öskju endurspeglar tvíhyggju ilmsins sem er kraftmikill og mjúkur. Hugrakkur og næmur. Burberry Hero Elixir de Parfum.
Innihaldslýsing
ALCOHOL DENAT., PARFUM/FRAGRANCE, AQUA/WATER/EAU, TETRAMETHYL ACETYLOCTAHYDRONAPHTHALENES, VANILLIN, JUNIPERUS VIRGINIANA OIL, POGOSTEMON CABLIN OIL, COUMARIN, LIMONENE, CITRUS LIMON (LEMON) PEEL OIL, CITRUS AURANTIUM BERGAMIA (BERGAMOT) PEEL OIL, ALPHA-ISOMETHYL IONONE, PINENE, LINALOOL, LINALYL ACETATE, CEDRUS ATLANTICA OIL/EXTRACT, CITRONELLOL, BETA-CARYOPHYLLENE, LAVANDULA OIL/EXTRACT, PELARGONIUM GRAVEOLENS FLOWER OIL, BENZYL BENZOATE, EUGENOL, EUGENIA CARYOPHYLLUS OIL, ROSE KETONES, CAMPHOR, CITRAL, TERPINEOL, GERANIOL, TERPINOLENE, ALPHA-TERPINENE, FARNESOL, CINNAMOMUM ZEYLANICUM BARK OIL, BENZYL ALCOHOL, GERANYL ACETATE, BENZYL CINNAMATE, CINNAMAL, TRIMETHYLCYCLOPENTENYL METHYLISOPENTENOL.