Hoppa yfir valmynd
Snyrtivörur

Varalitir og varablýantar

Armani Prisma Flash Lip Balm

Armani Beauty kynnir PRISMA FLASH, næstu kynslóð varasalva sem gefur ljóma, lit og næringu í einni stroku. Varasalvinn er í fomi varalits, kemur í glæsilegu hulstri og veitir nýja vídd af glansandi áferð og litstyrk.

8.899 kr.

Vöruupplýsingar

Armani Beauty kynnir PRISMA FLASH, næstu kynslóð varasalva sem gefur ljóma, lit og næringu í einni stroku. Varasalvinn er í fomi varalits, kemur í glæsilegu hulstri og veitir nýja vídd af glansandi áferð og litstyrk.

Formúlan inniheldur spegilperlur sem virkjast við ljóma og grípa samstundis ljósið og magna upp glansinn. Perlurnar eru framleiddar úr borósílíkati, sem er efnið sem speglar eru gerðir úr. Þær fanga, brjóta og endurkasta ljósi, sem skapar tærasta glans sem hefur sést í varasalva.

Síðan kemur liturinn: með einni stroku sýnir PRISMA FLASH líflegan og áhrifamikinn lit. Í fyrsta sinn skila snjall litarefni miklum litstyrk með miklu gegnsæi og ljóma, sem gerir ljósinu kleift að dreifast fallega og sameinast vörunum til að skapa einstaklingsbundna áferð.

Einstök formúla

Varasalvinn er fáanlegur í 18 ljómakenndum litum, þar á meðal einum sem bregst við pH-gildi húðarinnar. Formúlan inniheldur 63% húðnærandi innihaldsefni, þar á meðal bláberjaolíu og 12% squalane, sem veita allt að 24 klukkustunda djúpan raka og skilja varirnar eftir verndaðar, vel nærðar raka og þægilegar.

Ilmurinn er heillandi blanda af blómkenndum osmanthus og ljúffengu fíkjumjólkarkeimi, sem minnir á hlýjan Miðjarðarhafssumar.

PRISMA FLASH kemur í hulstri innblásnu af couture-hönnun. Það er unnið úr silfurlituðu áli með fáguðum kampavínsgylltum smáatriðum. Hulstrið er hannað með einkennandi merki Armani Beauty og skáhöllu loki, Giorgio Armani logoið í kampavínsgylltu prýðir toppinn.

Notkun

Renndu varasalvanum yfir varirnar í einni mjúkri stroku til að fá samstundis glansandi ljóma og líflegan lit. Varirnar fá góðan raka og tilfinningin verður þæginleg og góð.

Auktu styrkinn með því að bera á aðra eða þriðju umferð. Hver stroka eykur litstyrkinn og ljómandi glansinn sem endurkastar ljósi og gefur einstaka dýpt og líflegan gljáa.

Innihaldslýsing

POLYGLYCERYL-2 TRIISOSTEARATE • SQUALANE • BIS-BEHENYL/ISOSTEARYL/PHYTOSTERYL DIMER DILINOLEYL DIMER DILINOLEATE • BUTYROSPERMUM PARKII BUTTER / SHEA BUTTER • DIMER DILINOLEYL DIMER DILINOLEATE • SILICA • HYDROGENATED CASTOR OIL DIMER DILINOLEATE • POLYGLYCERYL-3 BEESWAX • HELIANTHUS ANNUUS SEED CERA / SUNFLOWER SEED WAX • SIMMONDSIA CHINENSIS BUTTER / JOJOBA BUTTER • HYDROGENATED JOJOBA OIL • POLYGLYCERYL-4 DIISOSTEARATE/POLYHYDROXYSTEARATE/SEBACATE • CANDELILLA CERA / CANDELILLA WAX / CIRE DE CANDELILLA • CI 77491 / IRON OXIDES • PENTAERYTHRITYL TETRA-DI-T-BUTYL HYDROXYHYDROCINNAMATE • CI 77891 / TITANIUM DIOXIDE • AROMA / FLAVOR • RAPHANUS SATIVUS ROOT EXTRACT / RADISH ROOT EXTRACT • AQUA / WATER / EAU • ELAEIS GUINEENSIS OIL / PALM OIL • CALCIUM SODIUM BOROSILICATE • CI 77499 / IRON OXIDES • CITRIC ACID • VACCINIUM MYRTILLUS SEED OIL • POLYGLYCERYL-6 POLYRICINOLEATE • CALCIUM ALUMINUM BOROSILICATE • TOCOPHEROL • CI 77492 / IRON OXIDES • ALUMINUM HYDROXIDE • TIN OXIDE • TOCOPHERYL ACETATE (F.I.L. N70069069/1).