Hoppa yfir valmynd
Snyrtivörur

Serum, olíur og ávaxtasýrur

BLUE LAGOON BL + The Serum

Kraftmikið andlitsserum sem vinnur gegn öldrunarmerkjum húðar og styður við heilbrigði hennar. Öflug formúla sem inniheldur einstaka samsetningu lífvirkra innihaldsefna sem stuðla að auknum raka, örva kollagenframleiðslu í húð, draga úr niðurbroti kollagens, jafnar húðtón. Auk þess að verja húðina gegn umhverfismengun með andoxunarvirkni. Regluleg notkun dregur úr sýnileika fínna lína og hrukkna, húðin verður heilbrigðari og fær bjartara yfirbragð. Virkni knúin áfram af okkar einstaka BL+ COMPLEX.

17.900 kr.

Vöruupplýsingar

Niðurstöður neytendakönnunar eftir 4 vikna notkun:

Þéttleiki

95% notenda voru sammála að varan bætti þéttleika húðar

Raki

100% notenda höfðu verulega aukningu í rakastigi húðar

Ljómi

100% notenda voru sammála um að húðin væri ljómameiri með notkun vörunnar

Styrkur

95% notenda voru sammála um að húð þeirra væri sterkari og heilbrigðari

Klínískar prófanir framkvæmdar af húðlæknum eftir 8 vikna notkun:

Rakastig húðar hækkaði að meðaltali um 70% hjá notendum þegar mælt var með Corneometer® eftir fjóra tíma. Rakinn mældist langvarandi og entist út daginn.

Notkun

Notið kvölds og morgna, eftir hreinsun, á andlit og háls. Setjið 4-6 dropa af seruminu á fingurgóma og þrýstið létt inn í húðina. Nýtið allt umfram serum á hálsinn og berið á með léttum strokum upp á við.

Innihaldslýsing

SEA WATER (MARIS AQUA), WATER (AQUA), GLYCERIN, PROPANEDIOL, PENTYLENE GLYCOL, ASCORBYL GLUCOSIDE, SODIUM HYALURONATE, SODIUM LEVULINATE, SODIUM ANISATE, SODIUM HYDROXIDE, LECITHIN, BIOSACCHARIDE GUM-1, ALGAE EXTRACT, SILICA, GLYCERYL CAPRYLATE, CITRIC ACID, TOCOPHEROL.