Hoppa yfir valmynd
Snyrtivörur

Andlitskrem

BIOEFFECT Hydrating Cream 50ml

BIOEFFECT Hydrating Cream veitir húðinni fullkominn raka sem endist allan daginn. Þetta einstaklega létta en nærandi andlitskrem er búið til úr hreinum efnum á borð við íslenskt vatn, EGF úr byggi, hýalúronsýru og E-vítamín. Það eykur raka og skilur við húðina slétta, mjúka og geislandi í allt að 12 klukkustundir.

12.898 kr.

Vöruupplýsingar

Nærandi andlitskrem með tæru, íslensku vatn sem veitir húðinni langvarandi raka. Grunnurinn í BIOEFEFCT Hydrating Cream er einfaldlega tært, íslenskt vatn. Hydrating Cream sameinar krafta íslenska vatnsins, EGF úr byggi, hýalúronsýru og E-vítamíns, auk þess að vera stútfullt af andoxunarefnum. Í sameiningu næra þessi áhrifaríku efni húðina og skilja við hana mjúka, þétta og slétta. Þetta olíulausa rakakrem eykur rakastig húðarinnar um allt að 35% eftir aðeins tvö skipti* og rakinn helst í húðinni í allt að 12 klukkustundir.

Notkun

Berið á andlit og háls, kvölds og morgna, og nuddið mjúklega inn í húðina. Frábær viðbót við BIOEFFECT húðrútínuna því það má nota bæði kvölds og morgna sem og eitt sér eða yfir uppáhalds BIOEFFECT serumið til að auka raka og næringu. Hámarksárangur næst ef kremið er notað sem hluti af almennri BIOEFFECT EGF húðumhirðu.

Innihaldslýsing

WATER (AQUA), CAPRYLIC/CAPRIC TRIGLYCERIDE, BUTYLENE GLYCOL, C12-20 ACID PEG-8 ESTER, CETYL ALCOHOL, DL-ALPHA TOCOPHEROL, PHENOXYETHANOL, SODIUM HYALURONATE, ETHYLHEXYLGLYCERIN, CARBOMER, SORBITAN OLEATE, POTASSIUM SORBATE, POTASSIUM HYDROXIDE, CITRIC ACID, BARLEY (HORDERUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1)