Hoppa yfir valmynd
Snyrtivörur

Brúnkuvörur

MARC INBANE Hyaluronic Self Tan Spray 100ml

Brúnkusprey með hýalúronsýru.

7.998 kr.

Vöruupplýsingar

Hýalúronsýru brúnkusprey - fyrsta brúnkuspreyið sem inniheldur þriðju kynslóðar hýalúronsýru sem hjálpar húðfrumum að drekka í sig og viðhalda raka. Viðheldur þéttleika og teygjanleika og stuðlar að heilbrigði húðar. Endurvekur daufa og þreytulega húð, mýkir hana og gefur henni náttúrulegan lit.

Hýalúronsýru brúnkuspreyið örvar kollagen framleiðslu húðar sem gerir hana frísklega og sléttari. Nærandi og mjúk formúla án alkohóls sem inniheldur Arlasolve™ sem gerir það að verkum að spreyið dreifist vel, þornar hratt og aðlagast fallega að þínum náttúrulega húðlit. Einn brúsi dugir í allt að 30 skipti á andlit og allt að 5 skipti á allan líkamann. Falleg brúnka á innan við mínútu sem endist í allt að 9 daga. Hentar öllum húðgerðum og passar í handfarangur! Hýalúronsýru spreyið gerir húðina ekki appelsínugula. Ilmurinn er sætur með blóma- og amber nótum.

Notkun

Spreyið ca. 30cm frá húð.

Notið stuttar, hraðar hreyfingar - ekki hægar, s-laga hreyfingar

Þornar á 10-15 mínútum

Hægt að nota hárblásara til að hraða þornun

Eftir 3 klukkutíma er spreyið að fullu þornað og hægt að æfa, fara í sturtu, etc.