Hoppa yfir valmynd
Snyrtivörur

Gervineglur

Elegant Touch Totally Bare Stiletto 003

Bare neglurnar eru glærar að lit og henta fullkomlega til að naglalakka eða skreyta að eigin vild. Stiletto neglurnar eru langar, mjóar fram og sérstaklega glæsilegar.

1.198 kr.

Vöruupplýsingar

Elegant Touch er stærsta gervinagla vörumerki Bretlands og gervineglurnar eru í hæsta gæðaflokki. Neglurnar eru þunnar svo þær virka ekki gervilegar og laga sig að náttúrulegu nöglinni. Neglurnar koma í mismunandi lagi og litum svo hver og einn ætti að geta fundið sínar fullkomnu neglur. Bare neglurnar eru glærar að lit og henta fullkomlega til að naglalakka eða skreyta að eigin vild. Stiletto neglurnar eru langar, mjóar fram og sérstaklega glæsilegar.

Notkun

1 - Hreinsið þína nögl, fjarlægið naglalakk ef það á við. Gott er að pússa létt yfir þína nögl og snyrta naglabönd. Einnig er gott að strjúka yfir þína nögl með naglalakkhreinsi, til að koma í veg fyrir raka og fjarlægja náttúrulega olíu naglarinnar. 2 - Finnið rétta stærð með að máta gervinöglina á þína nögl, án þess að setja lím. 3 – Berið þunnt lag af lími á þína nögl og passið að límið fari ekki á húðina eða í naglaböndin. 4 – Leggið gervinöglina upp að naglaböndunum, passið að líma ekki á naglaböndin. Leggið gervinöglina niður á þína nögl, frá naglaböndum og niður. 5 – Þrýstið gervinöglinni rólega niður og haldið létt við í um 15 sek, eða þar til að límið hefur fest sig.

Innihaldslýsing

Adhesive ingredients: Ethyl Cyanoacrylate, Polymethyl Methacrylate, BHT, BHA.