Vítamín
Magnesíum
Guli Miðinn Magnesíum Glýsinat 90 hylki
Magnesíum stuðlar að eðlilegri starfsemi taugakerfisins, beina- og vöðvastarfsemi, minnkar þreytu og er nauðsynlegt stoðensím fyrir fjölmörg efnaskipti í líkamanum. Magnesíum glýsinat hjálpar með vöðvaslökun og ró og er gott að taka á kvöldin fyrir enn betri hvíld yfir nótt.
2.698 kr.
Vöruupplýsingar
"Magnesíum stuðlar að eðlilegri starfsemi taugakerfisins, beina- og vöðvastarfsemi, minnkar þreytu og er nauðsynlegt stoðensím fyrir fjölmörg efnaskipti í líkamanum. Magnesíum glýsinat hjálpar með vöðvaslökun og ró og er gott að taka á kvöldin fyrir enn betri hvíld yfir nótt. Innihaldsefnið heitir fullu nafni magnesíum bisglýsinat þar sem magnesíum sameindin er bundin tveimur glýsin sameindum (bis=tveir). Þetta form er sérlega öflugt í nýtingu í líkamanum. Inniheldur einnig B-6 vítamín á forminu pýridoxal-5-fosfat sem hjálpar með virkni magnesíum. B-6 vítamín er einnig lykilefni í stuðningi við taugakerfið, ónæmiskerfið, sálfræðilega virkni og í minnkun þreytu og lúa. Notuð eru náttúruleg bindi- og kekkjavarnarefni: mjöl og trefjar úr hrísgrjónum. Gefur heil 350 mg af magnesíum í einungis 3 jurtahylkjum."
Notkun
3 hylki daglega.
Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Vítamín og bætiefni eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða að koma í veg fyrir þá og eiga ekki að koma í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.
Ábyrgðaraðili: Heilsa