Hoppa yfir valmynd
Vítamín

Brjóstagjöf og meðganga

Vitabiotics Pregnacare 30stk

Pregnacare er fyrir konur sem hyggja á barneignir eða eru þegar þungaðar. Tryggir konu og barni hæfilegt magn vítamína og steinefna á degi hverjum. Hvert hylki inniheldur m.a. B12, D-, E-, C- og K vítamín og steinefni á borð við járn, magnesíum, sink og kopar. Auk þess inniheldur Pregnacare 400 míkrógrömm af fólinsýru, en það er sá ráðlagði dagskammtur sem Embætti landlæknis mælir með fyrir konur sem hyggja á barneignir og fyrir konur á meðgöngu. 

1.698 kr.

Vöruupplýsingar

Vitabiotics Pregnacare Original

Notkun

Ráðlagður neysluskammtur er: 1 tafla á dag.

Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Vítamín og bætiefni eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða að koma í veg fyrir þá og eiga ekki að koma í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.

Ábyrgðaraðili: Icepharma