Hoppa yfir valmynd
Vítamín

Þvagfæri

Florealis Lyngonia Filmuhúðaðar Töflur 60stk

Lyngonia er einstök meðferð án sýklalyfja til meðhöndlunar á vægum, endurteknum þvagfærasýkingum kvenna. Lyfið inniheldur úrdrátt úr sortulyngi sem hefur þekkta verkun og langa sögu um virkni gegn vægri blöðrubólgu.  Hver pakkning inniheldur allt að 3 meðferðarskammta.

5.898 kr.

Vöruupplýsingar

Lyngonia

Lyngonia™ er jurtalyf til meðferðar á einkennum vægrar, endurtekinnar sýkingar í neðri hluta þvagfæra, svo sem brunatilfinningu við þvaglát og/eða auknum þvaglátum hjá konum, eftir að alvarleg veikindi hafa verið útilokuð af lækni.

Þetta lyf er jurtalyf sem hefð er fyrir og tilgreinda ábendingin fyrir notkun þess er eingöngu byggð á langri sögu um notkun lyfsins. Filmuhúðaðar töflur innihalda jurtaútdrátt úr sortulyngi (bearberry).

Notkun

Notkun: Fullorðnar og aldraðar konur: 2 töflur 2–4 sinnum á dag. Ekki nota Lyngonia ef þú ert með einhverja truflun á nýrnastarfsemi. Hvorki ætlað þunguðum konum né konum með barn á brjósti, körlum eða börnum og unglingum yngri en 18 ára. Notið ekki lengur en viku. Ef einkenni eru viðvarandi í meira en 4 daga eða versna við notkun Lyngonia skal hafa samband við lækni.

Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið áwww.serlyfjaskra.is

Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Vítamín og bætiefni eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða að koma í veg fyrir þá og eiga ekki að koma í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.

Ábyrgðaraðili: Vistor

Innihaldslýsing

Hver tafla inniheldur 361–509 mg af útdrætti (sem þurr útdráttur) af Arctostaphylos uva-ursi (L.) Spreng., folium (sortulyngslauf), sem jafngildir 105 mg af hýdrókínónafleiðu reiknað sem vatnsfrítt arbútín. Við framleiðslu á hverri töflu eru notuð 903–2291 mg af þurrkuðu sortulyngslaufi.