
Vítamín
Barnavítamín
Monkids Fiskiolía Omega-3 Sítrónu 60stk
Mjúk gúmmí með fiskiolíu og omega-3 fitusýrum sem innihalda DHA sem stuðlar að eðlilegri heilastarfsemi og sjón. Með mildu sítrónubragði.
3.298 kr.
Vöruupplýsingar
Monkids Fiskiolía er mjúkt gúmmí fyrir börn með fiskiolíu sem er rík af omega-3 fitusýrum. Fitan í fiski er mikilvæg uppspretta omega-3 og því er oft mælt með að börn neyti fisks reglulega. Gúmmíið er örhúðað (microencapsulated), sem þýðir að fiskiolían er umlukin örsmáum kúlum. Þetta kemur í veg fyrir fiskibragð og eftirbragð og gefur þess í stað milt sítrónubragð sem börn kunna vel að meta. Hver skammtur inniheldur DHA og EPA úr fiskiolíu. DHA stuðlar að viðhaldi eðlilegrar sjónar og eðlilegrar heilastarfsemi. Gagnleg áhrif fást við daglega inntöku 250 mg af DHA. Varan er án gelatíns og hentar börnum frá 3 ára aldri. Hægt er að nota Monkids Fiskiolíu samhliða öðrum Monkids vörum, svo sem fjölvítamínum eða D-vítamíni.
Notkun
Frá 3 ára aldri. Ráðlagður dagskammtur: 2–4 gúmmí á dag, tyggja vel. Best að taka með mat og reglulegri tannhirðu.
Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Vítamín og bætiefni eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða að koma í veg fyrir þá og eiga ekki að koma í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.
Innihaldslýsing
Cane sugar, glucose syrup (tapioca), water, fish oil , gelling agent (pectin), acidity regulator (citric acid), aroma (lemon), acidity regulator (sodium citrates, ascorbic acid), coloring (carotenes), sunflower oil, rice flour, coating agent (carnauba wax).