Vöruupplýsingar
Omega-3 forte er þykkni sem inniheldur meira magn af fitusýrunum EPA og DHA en aðrar Omega-3 vörur frá LÝSI. Fitusýrurnar eru okkur lífsnauðsynlegar sem þýðir að líkaminn getur ekki sjálfur framleitt þær. Þess vegna er mikilvægt að fá þær úr fæðu eða fæðubótarefnum.
Notkun
1 perla á dag.
Í Omega-3 forte eru ekki A- og D- vítamín og því er óhætt fyrir þá sem taka lýsi að nota Omega-3 forte á sama tíma.
Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Vítamín og bætiefni eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða að koma í veg fyrir þá og eiga ekki að koma í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.
Ábyrgðaraðili: Lýsi hf
Innihaldslýsing
1000 mg omega-3 fiskiolía, gelatín (nautgripa), rakaefni (glýseról), vatn, þráavarnaefni (náttúruleg tókóferól).